Svona virkar þetta
Algengar spurningar:
Verðið fyrir gistipartý frá Kósykvöldi er 25.000 kr. fyrir tjöldin og skreytingarnar, óháð því hversu mörg tjöld eru bókuð. Verðið er fast fyrir pakkann.
Við erum með tjöld fyrir allt að 6 börn. Hafðu samband ef þú hefur sérstakar óskir varðandi fjölda barna eða uppsetningu.
Við komum með tjöldin og skreytingarnar sem tilheyra völdu þema, ásamt ljósaseríum og loftljósum. Við sjáum um að skapa notalega og skemmtilega stemningu fyrir gistipartýið.
Já, þú þarft sjálf/ur að útvega dýnur, kodda, sængur, sængurver og teppi fyrir börnin. Við sjáum um tjöldin, ljósin og skreytingarnar.
Tjöldin eru hjá ykkur samkvæmt samkomulagi. Við förum yfir afhendingu, uppsetningu og skil á búnaðinum þegar bókunin er staðfest.
Við bjóðum upp á Kósykvöld um allt höfuðborgarsvæðið! Við komum með tjöldin og skreytingarnar heim til þín og setjum allt upp svo þú getir einbeitt þér að því að skapa yndislegt kvöld fyrir krakkana. ✨